Fréttir

Stutt núvitundarnámskeið (grunnnámskeið) fyrir ungt fólk á aldrinum 16-19 ára

Næsta núvitundarnámskeið eftir páska!

4x á þriðjudögum frá kl. 16.30 til 17.45

Athugið breytingar á dagsetningum! Námskeið hefst eftir páskana. 

Eftir páska hefst 4ra vikna námskeið í núvitund. Námskeiðið er opið fyrir fyrir ungt fólk á framhaldsskóla-aldri sem hefur áhuga á að kynna sér grunnatriði í núvitund.

Verð  18.000 krónur.

Hver tími er 75 mínútur að lengd og mælt er með 5-20 mínútna heimavinnu á hverjum degi á meðan á grunnnámskeiðinu stendur.

Leiðbeinandi: Edda M. Guðmundsdóttir.  

Staður: Núvitundarsetrið, Lágmúla 5, 4. hæð, 108 Reykjavík 

Skráningar á edda@hugskref.is eða edda@nuvitundarsetrid.is. Takmörkuð pláss.

Hér má nálgast viðbrögð þátttakenda við núvitundarnámskeiði.

  • Viltu prófa núvitund?
  • Læra að hugleiða og þjálfa athygli þína?
  • Kannski læra að nýta núvitund til að bæta þig í námi, íþróttum eða tónlist?
  • Auka einbeitingu eða draga úr kvíða?
  • Viltu tækla streitu sem tengist námi eða daglegu lífi?
  • Viltu læra aðferðir til að draga úr einkennum depurðar?

Þá er þetta námskeið eitthvað fyrir þig!

Rannsóknir hafa sýnt fram á að núvitundarþjálfun getur m.a. haft jákvæð áhrif á vellíðan, andlega og líkamlega heilsu, dregið úr streitu, kvíða og depurð, bætt svefn og aukið einbeitingu og árangur í námi, íþróttum og tónlist.