Fréttir

Núvitund fyrir ungmenni hjá Krabbameinsfélaginu

NÁMSKEIÐ: NÚVITUND FYRIR UNGMENNI

Ráðgjafarþjónustan býður upp á námskeið í núvitund sem byggist á Mindfulness-based Cognitive Therapy (MBCT) og er ætlað fyrir aðstandendur á aldrinum 16-22 ára. Námskeiðið hefst fimmtudaginn 14. september 2017 kl. 16:30-18:00 og er vikulega í fjögur skipti. Markmiðið er að öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Leiðbeinandi er Edda Margrét Guðmundsdóttir sálfræðingur.

Skráning á netfanginu radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið virka daga kl. 9-16.

Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.